Baðkarið okkar týndist... ó já var ég ekki búin að nefna það að
það er komið til landsins eftir 13 vikna ferðalag frá Póllandi...
skil ekki hvernig Pólverjar nenna að þyrpast hingað til lands ef
ferðalagið tekur svona langan tíma, þeir hljóta að vera svangir,
þreyttir og örmagna þegar þeir koma til landsins... en
allavega þá áttum við að fá það, baðkarið semsagt, sent í
sveitina en þegar okkur fór að lengja eftir því þá kom í
ljós að það var horfið, týnt og tröllum gefið!!!!
Ok það næsta sem gerðist og kemur baðkarinu títtnefnda ekkert
við var að ég þurfti að fara í eftirskoðun til að láta tjekka á
keisaraskurðinum upp á 5. hæð í húsi einu í RVK... ekki vandamálið
nema hvað!!! Lyftan biluð!!! Er eitthvað að, akkúrat í dag og
akkúrat á þeim tíma sem ég átti að mæta!! Úff úff úff, ég gat vart
sagt nafnið mitt og kennitölu þegar ég komst loksins
upp...
En dagurinn bestnaði... baðkarið fannst og komst á leiðarenda,
hingað í sveitina og ég komst heilu höldnu niður af fimmtu
hæðinni!!!
