Guð minn góður!!!!!
Prinsinn okkar
29.01.2007 14:05:24 / astarun

Róbert

Ó Róber, ó Róbert hví fann ég þig ekki fyrr??

Ég er komin með húshjálp, Róbert að nafni. Róbert er mesta þarfaþing sem ég ef eignast ef ekki er meðtalið eggjasuðutækið mitt sem ég þarf nótabene að fara að endurnýja. Róbert er moppan mín.

Jess jess ég fjárfesti í Robo-mop sem skríður um gólfin fyrir mig og hirðir upp lóna. Robo-mop eða Róbert eins og ég kýs að kalla vinnumanninn fer undir sófa, út í öll horn, undir rúm og hreinlega út um allt hjá mér. Þvílíkur munur. Síðan hleð ég hann bara við og við og þess á milli steinþegir hann bara óg bíður í ofvæni eftir næsta djobbi.

Ó Róbert ég elska þig!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 19:52:15 / astarun

Ég trúi þessu ekki!!!

Ég trúi þessu ekki... ég trúi þessu ekki... ég trúi þessu ekki!!!

Ok bara rétt að veita ykkur innsýn í talsmáta minn seinniparta síðustu daga. Ég er svoooo spennt og ég bara hreinlega elska handbolta. Djöfull hlakka ég til eftir svona 8 ár: ég og mín fjölskylda skundum út á HM til að fylgjast með honum brósa mínum þegar hann verður orðinn lykilmaður íslenska landsliðsins. Sjiiit hvað ég myndi missa mig á pöllunum af spenningi.

ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÞÚ STANDIR ÞIG DRENGUR!!!

Ég fylltist öfund þegar ég fylgdist með áhangendum íslenska landsliðsins sem staddir eru í Þýskalandi, kósveittum, hásum og blindfullum. Djöfull held ég að það sé gaman þarna hjá þeim.

En það er víst stærra og mikilvægara hlutverk sem bíður manns í þessum heimi, uppeldi frumburðarins.


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 13:58:43 / astarun

bwahahahahaha

Var í þessum töluðu að ljúka einu fyndnasta samtali ever:

Ég: Já góðan dag, ég þarf að fá upplýsingar um útfyllingu á pappírum vegna fæðingarorlofs.

Hinn: Já, þú þarft þær ekki því þú átt ekki rétt á greiðslum!!

Ég: haaaaa hvað meinar þú á ég ekki rétt á þeim??

Hinn: nei því miður...

Ég: ertu ekki að grínast!! af hverju ekki?

Hinn: Jah það er út af óáframreiknuðum skattatekjum (or something).

Ég: ha, nú skil ég ekki!!!

Hinn: heyrðu vinan...

Ég: já...

Hinn: passaðu þig næst þegar þú hringir útaf svona persónulegu máli að stimpla inn rétt símanúmer!!!!

Sjjjjiiiiiiit!!!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 12:37:23 / astarun

HM HM HM

Júúhúúú handboltinn að byrja, þ.e. heimsmeistarakeppnin ef það hefur farið fram hjá einhverjum og Íslendingarnir okkar auðvitað þar á meðal fremstu manna. Ég get vart hamið mig af hamingju og spenningi því í byrjun svona keppni held ég alltaf að við séum að tefla fram besta liðinu í öllum heiminum og nú er engin breyting á.

Ísland bezt í heimi!!!! 

Ég verð yfirnáttúrulega spennt við áhorfið, æpi og öskra, loka augunum eða lít undan af og til og get stundum ekki horft á nema með öðru auganu helst innan úr eldhúsi. Eins og það ætti að skipta einhverju máli hvort ég horfi á úr nálægð eða fjarlægð. Stúpit!! En ég er mest hrædd um að ég komi hríðunum af stað með þessum látum í mér því af reynslunni að dæma þegar ég hef farið á leiki með atvinnuhandboltamanninum mínum, honum bróður mínum, í vetur hefur allt farið af stað þarna inni í mér og engu líkara en að barnið sé að reyna að komast í gegn um úrtakið fyrir HM hópinn. Já ég ætla og ég skal að halda ró minni til að blessað barnið verði eins rólegt og hún mamma þess er að eðlisfari... Ein stór-stórbreyting er nú á áhorfi mínu!!! ég verð með appelsín, appelsínusafa, vatn eða ekkert í hönd í stað ískaldans bjórs... úff stórt stökk þar!!! Hvað er betra en að söngla þjóðsönginn okkar með einn ískaldann í þeirri vinstri og þá hægi á brjóstkassanum. Þjóðsöngurinn svei mér hljómar bara vel eftir nokkra slíka.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 17:56:08 / astarun

Að ná í tærnar...

Erfitt hefur reynst mér að ná í tærnar mínar í teygjum og beygjum allt frá fæðingu sökum óstyrkleikafæðingargalla sem ég erfði frá elskulegum föður mínum. Sama hversu oft í viku ég æfði íþróttirnar á mínum yngri árum varð árangurinn engu betri og er ég ekki frá því að það vanti bara einhver liðamót í mig. En hverjum er ekki sama??? En, þá að öðru sem í raun tengist þessu. Ég klippti á mér táneglurnar í gær, sem er nú vart frásögu færandi nema fyrir þær sakir að ég tel þetta vera í síðasta sinn sem ég geri þetta í dálítinn tíma þar sem bumban er bara hreinlega fyrir mér. Hér með óska ég eftir sjálboðaliðum til að sinna þessu mikilfenglega verkefni í ókominn tíma. Verið ekki feimin:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 19:30:54 / astarun

13. janúar 2007...

... og við hjúin settum upp jólaseríurnar á pallinn!!! Ekki seinna vænna að koma þeim upp þar sem ekki gafst tími til þess í desembermánuði.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 15:24:50 / astarun

Djammarinn..... ÉG

Skellti mér á skrall á föstdagsnóttina sem er nú þessa dagana til frásögufærandi þar sem stelpan hefur forðast fullt fólk eins og heitan eldinn síðustu mánuðina sökum áður óþekktrar edrúmennsku. Byrjuðum kveldið á pottalegu og um klukkan eitt um nóttina stóðvalið á milli þess að kíkja á koddann eða barinn. Aldrei þessu vant var ég í vafa hvort heillaði meira, BARINN eða KODDINN. Stelpan og spúsi hennar skelltu sér í Bingógallann og héldu af stað á barinn.  Draugabarinn á Stokkseyri var áfangastaðurinn og fékk ég vitanlega það hlutverk að vera bílstjóri... Það starf virðist eyrnamerkt mér þessa dagana og engu líkara en að ég verði aldrei aftur eins edrú og nú, svo mikið er að gera hjá TAXA-ÁSTU. Jæja, aftur að Draugabarnum... við áttum stefnumót við vinnufélaga karlsins þar sem er á aldri við mömmu og bjuggumst því við að aldurinn væri svona ca. frá tvítugu og upp úr!! En annað kom á daginn er við mættum, þarna vorum við ein af tíu prósentum sem voru með lögaldur. Restin af tíu prósentunum voru foreldrar ólögráða hljómsveitameðlima sem virtust vera einhvers konar fylgdarmenn eða hljóðfæraburðardýr fyrir þá. Vindum okkur að hinum níutíu prósentunum: Frá 16 - 19,9 ára, blindfullir unglingar og allir með bjór við höndeða hangandi á barnum bíðandi eftir afgreiðslu á slíkum varningi!!! Stúlkurnar klæddar eins og litlar hórur á horninu á ístegaðe að sumarlagi, sem sagt nánast í engu  og drengirnir í veiðihug á eftir hverri á fætur annarri. Ég lít nú ekki á mig sem gamla konu heldur rétt rúmlega tvítuga skvísu, en váááá!!!!!! Er bilið á milli kynslóðanna að breikka eða hvað frú Stella???? Ég var nú kannski sjálf ekki mannanna best í starfi mínu sem unglingur, en við vorum þó í minihluta sem ekki máttum vera inni á stöðunum en ekki í meirihluta eins og þarna var raunin. Og ég passaði mig nú á því að klæða mig áður en ég fór út og geri enn....


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 17:28:40 / astarun

gobbitigobbitigobb

Hestamennskan gengur frá mönnum, slasar eða hreinlega drepur. Á síðasta ári fannst mér ég heyra óvenju oft frá slysum sem tengjast útreiðum manna á hestum og hef því farið að velta því fyrir mér af hverju alvarlegu slysunum hefur fjölgað... Að vísu hef ég nú engar tölulegar staðreyndir um fjölgun en hef hana bara svona á tilfinningunni. Í sveitinni hérna áður fyrr datt maður kylliflatur hvað eftir annað af hrossum, hentist fyrst upp í loftið og lenti síðan víðs fjarri því sem maður sat upprunalega á en stóð alltaf upp aftur og hélt ótrauður áfram... og svo minnst sé á réttirnar, þar sér maður hvern manninn á fætur öðrum fljúga eins og þeir haldi að þeir séu vængjum settir, lenda fljótlega og standa síðan upp á ný eins og ekkert hafi ískorist, fá sér sopa úr pelanum sínum og hoppa aftur á bak. Djöfull munaði samt minnstu að ég hefði hlotið varanlegan líkamlegan skaða af þegar ég flaug tvisvar af sama hestinum, sama daginn og lenti og skautaði á rófubeininu eins og atvinnumaður í sleðaíþróttum á ólimpíuleikunum. Stelpan gat ekki setið á sínum pena í nokkra langa auma daga eftir þetta... Ætli ástæðan geti verið sú að menn eru hættir að ríða út á grasi, einhvers staðar út í móum og eru farnir að færa sig upp á mölina og jafnvel malbikið? Ég er ekki viss um að ég hefði staðið jafn fljótt upp eftir aðflug og lendingu ef malbikið hefði verið undir mér, eða hvort ég hefði yfir höfuð staðið aftur upp...

Því hvet ég með þessum orðum fólk til að fá sér einfaldlega hest í tunnu út í garð og salta hann vel því þá er hægt að hafa slysalaus not af honum. Það er hægt að snæða hann og jú jú ef fólk vill endilega fara á bak getur það sest á blessuðu tunnuna í leggingsbuxunum sínum og tilheyrandi búningi og beðið einhvern um að hrista hana.


» 5 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox