Guð minn góður!!!!!
Prinsinn okkar
28.07.2006 16:24:48 / astarun

Versló...

Jæja, þá er undirbúningur fyrir verslunarmannahelgina kominn í fullan gang... Búið er að panta Bakka-boli fyrir Traktórstorfæruna frægu og búningahönnuðir í fullu starfi í hugmyndavinnu fyrir knattspyrnukeppnina. Ætlunin er að fara með bikarinn heim á rétta staði í báðum keppnunum og því skiptir að okkar mati búningarnir afar miklu máli. Ef það er eitthvað vafamál hjá aðilum sem vilja eyða með okkur verslunarmannahelginni skal ég spara ykkur sporin og hringingarnar og segja ykkur það nú að ég og minn verðum vitaskuld á Flúðum-city. Jú jú hvar annars staðar en í bjórhúsinu góða... Stelpan verður fóstra um versló þar sem lítill trítill unglingur, jafn stór og ég að vísu verður hjá okkur í fullu fæði og húsnæði og því mikið mál hjá stelpunni að halda höfði og heilsu, standa ávallt í báðar lappirnar og haga sér skikkanlega þessa helgina. Miðað við fyrri störf og reynslu og vitaskuld einnig núverandi ætti þetta ekki að vera mikið mál fyrir húsmóðurina miklu!!! Með lappirnar upp í loft kveð ég að sinni... STA

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 20:25:58 / astarun

sveitapiltsinsdraumur

...eða dömunnar

Kál, kál og aftur kál og gulrætur, það má nú víst ekki gleyma þeim elskunum. Skúra, skrúbba og bóna er ekki lengur einkunnarorð húsmóðurinnar heldur eru það skera, snyrta og pakka... vííííííí jú það er nú ekki hægt að segja að kennslukonan sé beint í afslöppunarsumarfríi eins og flestir aðrir í þeim geira heldur er hún að frá morgni til kvölds að skera og taka upp grænmeti ofan í Reykvíkinga nær og fjær... ssssjiiiit hvað þjóðin er orðin holl í mataræði sínu því við höfum nú barasta ekki við!!!

Síðasta helgin vara bara fín... Fjólan mín kom í sína fyrstu og líklegast ekki síðustu heimsókn sína í hið víðfræga bjórhús og líkaði að ég held vistin vel... ég fékk hana til að eyða nóttinni í Gullhreppnum í stað þess að bruna til borgarinnar. Við skelltum okkur vitaskuld á Lagann og djömmuðum og dönsuðum sem aldrei fyrr... við meira að segja enduðum ballið á léttum danssporum uppi á stólum. Jú jú nokkrir bjórar höfðu þá þegar runnið ofan í glæsimeyjarnar eins og einhverjir kunnu að hafa giskað á. Samkvæmt síðustu talningu voru þarna staddir fleiri Graðbæingar en heimamenn og hittum við eina þrjá misfulla skólabræður okkar þarna á einu bretti... ekki slæmt það!!! Bara stuð á okkur...

Ég og spúsi minn ætluðum svoleiðis að fara snemma heim, um leið og ballinu lyki, en vitaskuld stóðum við ekki viðfögur fyrirheit og röltum heim tún um fimm leitið... svo góð var gítarstemningin fyrir utan ballið... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 13:43:35 / astarun

Bréf frá afleysingarbóndakonunni

Stelpan vaknar eldsnemma eða allt of snemma, hvort sem þið viljið kalla það og leggur á morgunverðarborðið handa vinnumanninum... hellir við og við upp á kaffi, vill oftar en ekki gleymast. Þá er ferðinni heitið út í fjós að gefa matnum að borða... ummm nammi nammi namm best að gefa nautunum sem mest svo kjötið verði sem mest og best á þessum elskum. Þá er ferðinni haldið út í gróðurhús að vökva, síðan líður dagurinn áfram algjörlega á hlaupum því það er svo brjálað að gera hérna. Alltaf sunny og stelpan á öðru hundraðinu , annað hvort á bíl eða sínum tveimur jafnfljótum...

Ef þetta er ekki ideal kennarasumarfrí hvernig er þá alenniglegt sumarfrí...

Sveitt, þreytt, útskorin og illt í skrokknum kveður afleysingarbóndinn með bros á vör frá Gullhreppnum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 10:00:01 / astarun

Hvernig er þetta hægt???

Jæja, hvað hefur drifið á daga stelpunnar upp á síðkastið.

Jú hún er marin og blá og svört eftir ansi kröftugt fall... ætla mér ekki að fara nánar út í það, þar sem það er ekki frá sögu færandi...

Er með huges 3ja vikna skordýrabit á hægri handleggnum sem virðist stækka með hverjum deginum...

Er með stungusár á lærinu! Ekki eftir skordýr heldur eitt stykki hníf... jú þar hitti hnífurinn kúna!!! Varð ekki fyrir árás heldur missti ég hnífinn í geng um gallabuxurnar mínar og á bólakaf í lærið mitt... ER EKKI ALLT Í LAGI?????

Stelpan er á leið í sveitina, kemur á óvart eða þannig... þar sem hún mun setja sig í spor garðyrkjubónda alla næstu viku og ekki nóg með það heldur ætlar hún einnig að fóðra matinn, eða gefa kálfunum eins og sannir bændur kalla það.

ííííííhahahahaha


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 18:35:30 / astarun

óóóókeeeey!!!

Skrapp í verslunarferð í höfuðborgina í dag sem reyndist síðan vera hin mesta óverslunarferð því lítið sem ekkert var verslað... og ólánið virtist elta landsbyggðartúttuna!!

Ég byrjaði á að brjóta herðatré sem á hékk bikini þegar ég setti það utan um hálsinn á mér til að máta.... og rétti afgreiðsludömunni það frekar skömmustuleg...

Síðan þegar ég var inni í klefanum að máta spyr sama daman hvernig þetta passi... ég tók í tjaldið sem hangir fyrir klefanum og ætlaði að opna inn í klefann... eeeen ég tók í vitlausan enda þannig að ég dróg í staðinn frá klefanum við hliðina á mér!!! Heeeelúúú þetta var nærfatabúð!!! Aumingja konan sem var þar:$

Síðan stal ég óvart stálherðatréi í annari búð eða það réttara sagt krækti sig í mig og ég gekk með það hangandi á mér um smáralindina....

Vá maður minn, hvernig er hægt að vera svona!!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox