Guð minn góður!!!!!
Prinsinn okkar
31.12.2006 16:25:14 / astarun

Saddam Hússein er allur að sögn manna...

...og búið að jarðsetja hann, en ég trúi því ekki fyrr en ég fæ að sjá þegar plankanum var kippt undan honum blessuðum. Skildi kistan hafa fallið beinustu leið til helvítis? Ég sá aðeins í fréttunum þegar snörunni var komið utan um háls hans og hún örlítið þrengd og fannst mér Saddaminn mjög friðsæll að sjá, alla vega miðað við illsku- og reiðissvipinn sem hefur verið á honum í réttarhöldunum síðustu mánuði. Þarna stóð hann sallarólegur, neitaði að fá hettu yfir andlitið, í sínu fínasta pússi ásamt sparifrakkanum og ég er ekki frá því að hann hafi verið með plokkaðar augabrúnir... svo fínn var kallinn. En er rétt að beita dauðarefsingu þó svo að þetta hafi verið sá maður sem drepið hefur flesta í heiminum á síðustu árum fyrir utan tóbaksframleiðendurna? Á þá yfir höfuð að leifa dauðarefsingar? Þó þetta hafi verið hann blessaður fylltist ég hálfgerðum viðbjóði. Ég held að það hefði bara verið mikið skárra að láta hann rotna einhvers staðar á stað líkum helvíti... gefa honum lítið að borða og hafa hann í sýningarklefa þar sem gestir og gangandi gætu leigt sér prik til að pota í hann. Eða eitthvað álíka...

Jæja, elskurnar... gleðilega hátíð og gleðilegt nýtt ár. Hafið það sem allra best á þeim tíma sem eftir er af gamla árinu og megi ykkur ganga allt í haginn á því nýja... VÆMIР


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 20:00:40 / astarun

Er til fátækt á Íslandi?

Fátækt á Íslandi er sífellt í umræðunni og þá sérstaklega í kring um jólahátíðina og telja fræðimenn að hún sé sífellt að aukast og biðraðirnar að lengjast fyrir utan Mæðrastyrksnefnd og önnur styrktarfélög. Ég hef í nokkurn tíma verið að velta því fyrir mér hvort einhver eiginleg fátækt sé í raun og veru á Íslandi og þá hvernig hægt sé að skilgreina einhvern einn fátækan og annan ekki. Hvað er fátækt? Hvað felst í orðinu fátækt? Hverjir teljast til þessa hóps? Einhverjir sem hafa minna á milli handanna en aðrir vegna sjálfskapaðra aðstæðna ef til vill, lítillar menntunar, óreglu, skuldasöfnunar eða skorts á sjálfsskaparviðleitni? Eiga ekki flestir t.a.m. bíl/bíla, sjónvarp/vörp, video-tæki, fleiri en eitt par af skóm, buxur, nokkur pör af sokkum og svo framvegis? Sumir meira að segja reykja og aðrir fá sér í glas og aumka sér síðan sem fátækir einstaklingar. Ég held að þetta sé bara spurning um forgang í einu og öllu, hverju ertu til í að sleppa til að eiga fyrir einhverju öðru. Í umræðunni er að hjálpa þeim fátæku hér á landi með því að minnka skatta þeirra og hækka bætur svo eitthvað sé nefnt til að börnin líði ekki skort. En hvernig er hægt að sigta út þá sem eru fátækir frá hinum, hverju á að fara eftir? Barn tekjulítilla foreldra getur jafnvel haft það betra en barn tekjuhárra foreldra sem hafa steypt sér í neysluskuldir. Á bara að hjálpa þeim fátæku sem ekki geta af því gert að þeir séu illa staddir í lífinu eða einnig þeim sem hafa skapað sér aðstæðurnar sjálfir með t.a.m. neyslu eiturlyfja...

Vá djúpt!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 18:49:59 / astarun

Jóólin jóólin

Ok þá eru jólin farin og aukakílóin komin. Sjiiit hvað ég er fegin að þessi tími matar er einungis einu sinni á ári. Ekki nóg með það að maður étur sig til óbóta upp á hvern einasta dag heldur tvöfaldar maður fyrri átgetu yfir jólin og liggur síðan afvelta og kveinkandi í eigin vorkun. En ég var nú búin að vinna mér inn fyrir þessu áti með því að arka um götur Lundúnarborgar í nokkra daga með bakverki, hælsæri og axlarsig undan pokaburði. Fólk var nú búið að hafa orð á því hvað það yrði fyndið ef við yrðum veðurtepptar í útlandinu yfir jólin og munaði minnstu að brandarinn yrði af veruleika sökum þoku í Lundúnum og óveðurs á klakanum. En verslanirnar á Oxford voru opnar til 21:00 á aðfangadagskvöld þannig að við hefðum nú svo sem haft alveg nóg fyrir stafni. Bumban var nú aðeins að láta stelpuna finna fyrir sér en þá settist hún bara niður í verslununum eins og hinir þreyttu makarnir... sem voru nú frekar í meirihluta hins kynsins.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 10:48:07 / astarun

Farsímar.

Og Vodafone auglýsir í sífellu að komi maður með gamla símann sinn upp í nýjan fyrir jól rennur ákveðin peningaupphæð til þróunarlanda og síðan mun gamli síminn verða sendur til þróunarlanda og öðlast þar nýtt líf. Ok mér er spurn, hvað hefur fólk í þróunarlöndunum við GSM síma? Ef á annað  borð búið er að setja upp farsímakerfi... Ok þar er ekki einu sinni farsímasambarnd á öllu Íslandi, hvað þá í Eþíópíu. Á fólkið að hringja sín á milli til að spyrja hvort það eigi ekki að vera samferða að ná í vatn eða spyrja hvort maðrinn í enda húsinu sjái hvort þorpskamarinn sé laus í augnablikinu... Er þetta ekki einhver skekkja þarna á ferð, konur ef til vill að labba fleiri fleiri kílómetra til að sækja vatn og svo hringir Nokia 5110 í vasa þeirra! Mér er spurn, er þettta að virka??


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 12:39:55 / astarun

Það er eins gott að

utanlandsferðirnar eru ekki fleiri en þær eru hjá stelpunni þvi eins og staðan er í dag er hún nánast svefnlaus af spenningi og þegar hún loksins nær að dotta smá er hún á fullu að arka upp og niður Oxford Street, inn og út úr búðum, með bólgnar fætur og axlarsig af pokaburði og vaknar því ívið þreyttari en þegar hún laggðist á koddann!!! Staðan er nefnilega sú að á þessu augnabliki, ekki á morgun heldur hinn verðum við stöllur úti í borg okkar að spóka okkur í jólaösinni!!! Ekki leiðinleg saga þarna á ferð!!

Allar jólagjafir tilbúnar nema eitthvað svona smotterý hér og þar sem ég veit hvað á að vera og í hvaða hillu í  viðkomandi verslun allt er... Vísa Skvísa komin í höfn, búin að þvo báðar buxurnar mínar og allt reddý.

júúúúhúúúúú


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 16:02:29 / astarun

Herra Ólafur Ragnar Grímsson!

Hvar er fálkaorðan mín?

Úff hvað það þarf sterk bein til að vera svona mikill snilli eins og raunin er með mig! Ég átti tíma hjá ljósmóður í dag sem er nú ekki merkilegt þar sem þetta var nú bara venjulegt eftirlit. Alltaf áður en ég geng inn til hennar á ég að bregða mér á sjúkrahússsettið, pissa í glas og stinga mælistiku ofan í til að ljósan geti séð hvort ég sé svona nokkurn veginn í lagi. Ég, í spreng, bruna eftir kennlu heim til að ná í símann minn og þaðan beint upp á sjúkrahús og rakleiðis inn á klósett þar sem það var nú næstum farið að dropa hjá stelpunni svo mikil var neyðin. Ég pissa vel og vandlega í glasið, legg það frá mér læt síðan restina buna beint í settið. Vá léttir að tæma alveg! Því næst skeini ég eins og vaninn er að gera hjá ungfrúm eins og mér, stend upp sturta niður og um leið helli ég pissinu úr glasinu einnig í settið. Sssssjjjiiiiit ég gleymdi að stinga helv. stikunni í glasið og klúðraði þessu þar af leiðandi.

Hjá ljósunni:

Ljósan: Jæja, pissaðir þú í glas?

Ég: Uuuu já ég gerði það nú:|

Ljósan: Og hvar er stikan?

Ég: Uuuu sko ég gleymdi að stinga stikunni í glasið og hellti pissinu í klósettið:D

Í þeim töluðu orðum sprakk ljósan úr hlátri og ég einnig að sjálfsögðu!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 10:48:34 / astarun

afmæliskveðja

Maðurinn minn heittelskaði varð árinu eldri í gær en er að eigin sögn ekki deginum eldri en honum finnst, yngri en ég sem sagt!! Veit ekki alveg hvort það sé svo holt að ljúga svona að sjálfum sér, ÉG ER YNGRI!!! En kjellan hélt lítið matarboð honum til heiðurs og sauð saltkjet, kartöflur og bjó til jafning! Myndarskapurinn alltaf hreint!!! Verð nú að láta það fylgja með að ég færði honum fyrsta pakkann í sögu sambandsins... jeminn eini er ég að verða væmin eða??? 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 17:20:11 / astarun

Ég er sjálfri mér nóg!!!

Í gærdag skrapp ég í endurvinnsluna til að skila dósum eins og flest annað venjulegt fólk gerir í endurvinnslum. Þegar enduvinnsluvinnumaðurinn tekur upp eina Volka-flösku hefst mjög svo undarlegt samtal:

E: Hvað er þetta?

Mo: Ég veit það ekki!!8|

E: Er þetta vatn:lol:?

Mo: Ég veit það ekki!!8|

E: Er þetta spíri?

Mo: Ég veit það ekki!!8|

E opnar flöskuna, þefar og segir: Jú jú þetta er spíri!!!

Mo: uuu hentu þessu bara!!8|

E: nei maður hendir ekki spíra, hann verður bara betri með árunum!!!

Mo: uuu er það??8|

E: já já þú tekur hann með þér og drekkur hann bara á leiðinni!!!

Mo: uuu ok??:lol:

Í því nær endurvinnsluvinnumaðurinn sér í hálfs líters kókflösku með smá slefi í frá einhverju öðru heimili og hellir „Volkanum“ í hana og réttir mér!!

Úff hvað ég átti bágt með mig!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 10:33:18 / astarun

Get vart beðið

Jæja, ekki nema tæpar tvær vikur í Londonferð okkar stallna sem þýðir að í næstu viku þarf ég að vera búin að gera og græja allt í fyrir jólin... eða réttara sagt bara allar jólagjafirnar því elskan hún mamma mín sér um allt hitt. Að vísu er nú bara smotterý eftir í jólagjafastússi en ég þarf að pakka þeim inn og koma þeim á rétta bæi. Brottför verður þann 19. des og komum við heim ef veður leyfir þann 23. des, nú annars verðum við bara veðurtepptar í faðmlögum í Lundúnarborg yfir jólin...


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 11:05:13 / astarun

Afmæliskveðja

Auðlingurinn

hún Fjóa mín

Lundúnafari eftir 14 daga

á afmæli í dag.

Stúlkan rétt búin að ná tuttugu árunum.

Til hamingju með daginn elskan!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 10:29:46 / astarun

Bíllin minn fríííð... ur

Vá hvað ég elska hann... ekki nóg með að hann komi mér á milli staða heldur þarf ég ekki að hafa fyrir neinu þarna innanborðs. Maður skellir bara á krúskontról og getur þess vegna skellt sér aftur í og lagt sig á meðan hann kemur manni á milli staða. Nú svo þegar hálka er, úff hvað hann er séður, og honum finnst maður vera að keyra heldur greitt miðað við aðstæður þá hreinlega hægir hann bara á sér!!! Hehehehe bara snilld. Já og ekki má gleyma rúðuþurrkunni sem er að framanverðu, maður er kannski með hana á milljón á leiðinni í kaupfélagið og svo þegar maður leggur þar fyrir framan og setur í parkið þá er að sjálfsögðu óþarfi að hafa rúðuþurrkuna enn á milljón... hmm hmmm jú jú þá hægir hann sjálfur á henni!!! Er hægt að hafa meiri lúxus???? Bíl sem hugsar fyrir mann og er sneggri en sjálfur bílstjórinn að hugsa fyrir hlutunum!!

» 3 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox