Guð minn góður!!!!!
Prinsinn okkar
23.09.2005 18:35:50 / astarun

bankaviðskipti stelpunnar

Hafði mig loksins í að fara  í bankann áðan og borga ágætis reikning sem ég fékk í hendur á mánudag og átti að borga samdægurs. Gleymdi honum blessuðum dag eftir dag eftir dag..... Ég ók af stað, arkaði inn í bankann, beið þar til gjaldkerinn bauð mér til sín, rétti honum reikninginn og sagðist vera komin til að borga hann!! Gjaldkerinn horfði á mig eins og hún væri að bíða eftir einhverju öðru og ég stóð og horfði á hana án þess að skilja augnaráð hennar... Síðan spyr hún mig hvort ég sé ekki með pening og ég svaraði neitandi. Þá spurði hún mig hvort ég væri þá með kort og ég savaraði því einnig neitandi og uppgötvaði þá mistök mín og ástæðu augnaráðsins!!! Ég gleymdi semsagt að taka með mér peninga til að borga helv. reikninginn!!!!! Ég, eins og asni, tók reikninginn úr höndum gjaldkerans og gekk út, rauð og skömmustuleg til að aka aftur heim til að ná í aur og síðan aftur upp í banka!!!! Vá ef þetta er ekki hámark gleymskunnar!! hvað hélt ég eiginlega???? að nóg væri að afhenda reikninginn og svo myndu þeir sjá um rest!!!!!

Amen


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2005 17:13:14 / astarun

kindur kindur kindur

Jæja þá sjaldan sem maður missir fingur sína á þetta blessaða lyklaborð og tjáir sig. Það gefst nú varla tími til þess þessa dagana eins og glöggir heimsóknaraðilar hafa tekið. Maður er nú bara að keppast allan liðlangan daginn við að ala eins og tæplega tuttugu börn upp og þegar því líkur taka heimilisstörfin við eins og á fleiri heimilum býst ég við. En lítið sem ekkert djamm á manni... jú vert er nú að minnast á að heitapotturinn góði var vígður á einum ágætis laugardegi fyrir skömmu og þarf vart að mynna fólk á hversu fullir allir verða í svona pottum... múhahahah nei nei við vorum ósköp spök.

En senn líður að réttum og getur stelpan vart sofnað á kvöldin sökum spennings. Ég fór nú ásamt ástmanninum og tók forskot á sæluna í Holta- og Landssveit og náði í nokkur lömb okkur til ánægju... ekki það að þessar upplýsingar komi ykkur að gagni. En mikið óskaplega eru blessuð lömbin vitlaus. Þarna stóðum við uppi á kindaflutningavagni og æptum, öskruðum og böðuðum út öllum höndum… en ekkert gerðist,  þau annaðhvort stóðu bara í stað og horfðu á okkur eins og VIÐ værum vitlausi hlutinn af þessu teymi en ekki þær nú eða snéru sér við og reyndu að bakka svo dæmi séu tekin!!! Og ef eitt lambið gerði eitthvað urðu hin vitaskuld að feta í fótspor þess!!! sem gat jú verið kostur þegar eitt tók sig til og stökk niður stukku svona þrjú til fjögur strax á eftir en um leið og eitt hikaði, hikaði allur vagninn!!!! Þetta átti líka við ef ein tók sig til og bakkaði vildu hin líka gera eins og úr varð eins konar átroðningur sem olli því að einhver þurftu að prjóna upp á önnur… ef einhver ókunnugur hefði arkað að vagninum hefði sjónin heldur betur ekki verið fögur því þetta leit út fyrir að vera hin mesta orgía.

 

 



Jæja verða að skunda


» 1 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox