Guð minn góður!!!!!
Prinsinn okkar
17.08.2005 17:08:37 / astarun

mánaðrlegt fréttabréf stelpunnar.....

Já það er ekki hægt annað en að segja að fullorðinsárin séu gengin í garð. Stelpan hefur hafið störf sem kennari og situr einmitt í þessum töluðu orðum við tölvuna sína í skólastofunni sinni... hmmmm frekar undarlegt! Hef nýlokið við að flokka tréliti og tók mig til og nagaði nokkra þeirra svona rétt til að fá fílinginn... En annars er ekkert annað en gott af mér að frétta, síðastliðna helgi gengum við hjónin í það heilaga og heppnaðist bæði athöfnin og veislan mjög vel. Allir skemmtu sér konunglega og erum við búin að vera á kafi ofan í pappakössum að taka upp gjafir frá ykkur elskurnar mínar.

ER EITTHVAÐ AÐ!!!! Nei nei nei þó svo að fullorðinsárin séu gengin í garð er algjör óþarfi að ganga svona langt... Vá ég svitnaði eiginlega bara...

Þarna sjáið þið, það er ekkert að frétta af mér...kominn er hálfur fataskápur í hjónaherbergið... ekki gaman að koma þessu apparati saman og mæli ég með heilum hellingi af pásum við vinnu sem þessa. Nú svo fer heitipotturinn líklegast niður um helgina þannig áð vænta má þess að við bjóðum til ærlegs pottateitis í náinni framtíð.

aldílæ!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox