Guð minn góður!!!!!
Prinsinn okkar
05.03.2008 09:04:20 / astarun

Síminn minn reyndi að strjúka!!!!

Það hefur nú löngum þótt lítið mál að setja samasemmerki á milli þeirrar sem hér ritar og síma þar sem henni hefur alla tíð þótt mjög gaman að tjá sig í gegn um þetta apparat. Eigi vissi ég nú samt að samband mitt við símtólið væri svona ástar-haturssamband, þ.e. ást frá mér og hatur frá tólinu fyrr en eitt kvöldið að bankað var á dyrnar á Á11 og húsfreyjan spurð hvort hún sakni ekki símans síns, hann hefði nefnilega fundist á kafi í skafli úti á götu.... uuuu jú einmitt þetta var minn sími. Stúlkan alveg nokkuð vön að glata hlutum sínum og þar með töldum gsm-símanum, en það sem var hið undarlega við þetta mál að þetta var
HEIMASÍMINN!!!!
Hellúúúú eru símar með sál, eru þeir lifandi, geta símar strokið???
Sú tillaga hefur nú borið á góma á Á11 að endurvekja gamla snúrusímann og vita hvort það sé ekki erfiðara fyrir hann að hlaupast á brott...

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 09:03:36 / astarun

´Þorrablót...

Við hjúin skruppum á glimrandi skemmtilegt Hreppablót um helgina, svo skemmtó að ég er jafnvel að spá í að skella mér á Hjónaball... Var búin að salta ballið en stend nú í viðræðum við systur mína um hvort ekki sé réttast að skella sér í Bingógallann og skvetta úr klaufunum.

Á ballinu var ýmislegt ráðabrugg planað..... hehehehe you had to be there:)

 Drengurinn var svo sóttur í bæinn í gær eftir helgardvöl hjá afa og ömmu og bjuggust foreldrarnir við aðeins meiri fagnaðarlátum frá syninum. Hmmm við tökum þetta ekki svo nærri okkur, það er bara greinilegt að það er gott að vera á B20!!!

Ég át ósúra matinn eins og ég væri á launum við það, með mikilli snilldarrófustöppu, jafningi og jarðeplum og drakk ýmist mjöður eða annan varning með. En daginn eftir þegar ég leit yfir trogið með afgangs þorramatnum fór ég að pæla í hversu virkilega ógirnilegur þorramatur er!!! Ég meina það stöppuð og þjöppuð svið í hlaupi!!! Hverjum datt þessi andskoti eiginlega í hug???


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 15:21:40 / astarun

Hver hefði getað ímyndað sér fyrir nokkrum árum...

Lofaði góðu þessi fyrirsögn, en það er ekkert framhald á henni... fannst hún bara efnileg.

Hvað er svo sem að frétta annað en tímaleysi??? Jú sökum þess títtnefnda tímaleysis hefur hann langtsíðannefndi Róbert (moppan mín) varla undan! Stelpan nefnilega vinnur bara og vinnur, Emilast, verslar, eldar, hvílir og þrífur sig og lætur Róbert um rest. Verst að hann hoppar ekki upp í gluggakistur og hillur og tekur úr uppþvottavél og öðrum vélum og gengur frá!!! Pfúff þá er maður kominn út á þann ís að fara að fá sér lifandi heimilishjálp.

Jæja hvað um það... Ég og minn eiginmaður til fjölda ára ætlum að gera okkur glaða daga þessa helgina, trilla með piltinn okkar unga til Ömmu hans og afa á B20 og hafa það sjálf náðugt, svona eins og hér áður fyrr. Við höfum nefnilega ekki skemmt okkur saman síðan á haustdögum og þá var meira en ár síðan við gerðum okkur glaðan dag einhvers staðar, hei!!! Nú get ég notast við fyrirsögnina... já hver hefði trúað því fyrir nokkrum árum að þessi upptalning kæmi frá stelpunni, DJAMMMEÐALTAL: 1 á ári!!! Úff, lengi getur vont versnað eða gott bestnað hvort heldur sem þið viljið.

Smá vísbending um komandi helgi!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 16:05:51 / astarun

Gekk ég yfir snjó og land!!!

Sjitt vhað snjóar hér í Selfoss-city!!! Svo mikið að bíllinn komst ekki til að sækja prinsessuna í vinnuna og þurfti hún því að vaða snjó upp fyrir hné alla leiðina heim. Vííííí NOT!! Og enginn stoppaði fyrir þessum undurfagra snjókalli sem bograðist um í vinkil á móti bilnum til að ná andanum!!! Úfff hvað þetta tók á, lærin frosin, vaðandi hornös og maskarinn niður á bringu... Er kannski ekkert skrýtið að enginn stoppaði???

Jæja, þegar ég var við það að komast heim sá ég að tveir af bílunum sem óku fram hjá mér eins og blindir kettlingar sátu pikkfastir og ég bara labbaði fram hjá þeim eins og hinn blindi kettlingurinn!!! Djö er mikið um þessa blindu ketlinga hér í bæ... skrýtið


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 09:09:02 / astarun

Hvar ertu búin að vera allt mitt líf...

... eða allavega síðan um jól???

Bissí útivinnandi húsmóðir!!!! Svo mikið að gera hjá skjátunni að það er vart tími til að anda og ef öndunin væri ekki sjálfvirk væri blessunin líklegast bara dáin. Sjitt, ég er viss um að það hafi aldrei í sögu landsins verið svona mikið að gera hjá einni konu, við að halda úti heimili og vinna!

Ég hef ekki einu sinni haft tíma til að fara og versla á mikilfenglegum útsölum Reykjavíkurborgar né í Selfoss-city! Og þá er nú mikið sagt ef maður sér ekki smá glufu til að eyða öllu því fjármagni sem maður aflar sem kennslukona.

Það er inn núna að birta annál ársins hér á netinu og hef ég ákveðið í ljósi þess að ég sendi ekki út annál í jólakortaformi að gera það hér....

Það sem gerðist á árinu var að mér fæddist sonur!!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 15:51:33 / astarun

...

Gleðileg jólin elskurnar mínar

Og takk fyrir liðnar stundir

Etið nú eins og þetta séu ykkar síðustu máltíðir

því þetta eru jú dagar ofáts.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 19:11:48 / astarun

8 mánuðir liðnir!!!

Já síðast dagur minn í fæðingarorlofi er runninn upp... Andskotinn og ég sem ætlaði að gera svo mikið og hef í rauninni ekki enn byrjað á "to do" listanum sem ég útbjó. Sem dæmi um það ætlaði ég að finna til skóladótið mitt áðan þá rann það upp fyrir mér að ég ætlaði að fara í gegn um það dót áður en ég hæfi störf á ný og henda og skipuleggja það... en nei nei skóladótið mitt er nákvæmlega þar sem ég lagði það á sínum tíma:) Og enn í sömu óreglunni og þegar ég skildi við það... Hlutirnir laga sig víst ekki sjálfir.

Nú verð ég vinnandi kennari frá morgni til kvölds á lágmarkslúseralaunum...


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 13:39:28 / astarun

Er Selfoss á höfuðborgarsvæðinu???

Eða eru glæpamennirnir farnir að leyta út fyrir bæjarmörkin???

Einn morguninn í vikunni er Krissa mínum litið út um gluggann og sér þá að bílarnir tveir sem stóðu á planinu hjá okkur standa þar ekki lengur, heldur úti á miðri götu... What??? Bjallan okkar fríð er föst í handbremsu eftir að einhverjir pörupiltar léku sér í henni fyrr í haust þannig að þeir sem ætluðu sér að nappa henni náðu bara að aka henni út á götu og gáfust þá upp á henni. Þá voru góð ráð dýr... hmm ok hvernig væri að taka þá bara næsta bíl??? Júbb þeir fóru inn í Súbbann og reyndu einnig að aka á brott á honum, en því miður strákar mínir!!! Meiri druslu er vart hægt að finna og þarf lægni og þolinmæði til að koma honum af stað... Bílinn kallar stúlkan nefnilega súhúhúhúhúhúhúhúhúhúbarúúú og er þar góð ástæða að baki. Jæja, hvað um það, steliþjófarnir komu honum einnig bara út á götu og þurftu því andskotarnir bara að fara sínar leiðir fótgangandi... Æj greyin!!!!

Eins gott að frúarbíllinn er geymdur inni í skúr!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 10:53:20 / astarun

Hmm...

Sonurinn vaknaði í nótt kl. 16:00 og reyndi múttan eins og hún gat að svæfa hann aftur því hann á ekki að vakna til að drekka klukkan fjögur á nóttinni heldur í fyrsta lagi klukkan sex á morgnana. Þarna voru stálin stinn greinilega mætt aftur og gekk ekkert hjá móðurinni að fá soninn til að sofna aftur. Þá fara heilasellurnar hjá mömmunni í gang, bíddu bíddu er klukkan 16:00?? En hún verður aldrei 16:00 á nóttunni!!! Fjandinn sjálfur, enn einn draumurinn!! Klukkan var ekki 16:00 heldur 6:00 og því tímabært fyri elskulegan soninn að fá sér sjúss...

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 20:35:50 / astarun

Meðgöngu/fæðingarþoka!!!

Hver hefur ekki heyrt kvenkynið skýla sig á bak við meðgöngumóðu eða þoku eða hvað þetta nú heitir?? Það er þegar konur muna ekki hluti í mínútu, gleyma sjálfum sér og öllu öðru og fara úr einu í annað þannig að þeim verður ekkert úr verkum.

Hellú, ég er að lýsa mér!!!! Og jú jú þessi móða eða þoka er TIL!!!!

Um daginn skrapp ég á bílnum út í búð, sem er nú vart til frásögu færandi. Bíllinn minn er alltaf geymdur inni í skúr þannig að hann er alltaf heitur þegar ég þarf á honum að halda... bara næs. En hvað um það... Ég renndi af stað útúr skúrnum og skildi feðgana eftir heima og þegar ég kem til baka er hann maðurinn minn búinn að opna fyrir mig bílskúrshurðina svo ég gat bara rennt beint inn!!! Váá ekkert smá hugulsamur!!! Jæja ég loka hurðinni á eftir mér og þegar ég kem síðan inn situr þessi elska uppi í sófa að krókna úr kulda!!! Hmmm það var ekki hann sem opnaði, það var víst ég sem gleymdi að loka!!!!

Jæja, næst þegar ég kem heim eftir búðarferð er mér svo umhugað að loka fjárans hurðinni að ég gleymdi að drepa á bílnum!!!! hmmm hvað gengur eiginlega á??? Er þokumóðan komin til að vera eða hvenær hverfur hún eiginlega???


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 16:05:00 / astarun

Hengilásar og bara lásar...

Nú er maðurinn á heimilinu alvarlega að spá í að setja hengilása innan á allar útidyrnar hér á bæ, svona sem maður krækir og síðan venjulega lása þar á og gleypa síðan lyklana... ok kannski ekki alveg að gleypa þá en fela þá allavega vel og vandlega í fórum sínum. Ástæðan?? hmmm hann er orðinn hræddur um líf konunnar, að hún sé að stefna lífi sínu í hættu og fari sér á voða einn góðan veðurdag án þess að vita það. Já næturbröltið enn eina ferðina er farið að ganga svo langt að maðurinn áðurnefndi er farinn að hugsa sig tvisvar um og þorir ekki að yfirgefa konu sína yfir nótt svo hún geri nú ekki eitthvað alvarlegt, sér og öðrum í óhag. Nú síðast sat frúin uppi og starði á og kleip manninn svo oft og vel að stórsá á honum og sagði síðan úff sjúkket þið eruð báðir hérna... veit ekki hvar annarsstaðar þessar elskur mínar, maðurinn og sonurinn, ættu svo sem að vera. 

Ég var svona að spá í hvort ég gæti ekki nýtt þennan tíma sem ég er meðvitundarlaus en samt með meðvitund í eitthvað gagnlegt eins og t.a.m. það sem ég nenni helst ekki að gera yfir daginn, þrífa og þvo þvotta svo einhver dæmi séu tekin... Ég man svo sem ekki mikið eftir þessum mínútum þegar ég vakna, mig rámar aðeins í þær en gott væri að geta klárað húsverkin með bros á vör án þess að muna eftir því...


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 20:17:12 / astarun

Je minn eini

Stúlkan rankaði við sér í nótt með augu mannsins hennar starandi á hana með spurnarsvip og var þá í þeim töluðu orðum að nudda manninn!!! What???... andsk. djö. helv. ekki aftur!!! Djöfull skammaðist hún sín og hafði meira að segja orð á því við þann sem þáði nuddið. Næturruglinu og bullinu ætlar bara ekki linna hjá henni. Nú það var ekkert annað í stöðunni en að leggjast aftur á koddann og halda áfram að sofa eins og venjulegt fólk gerir! Í morgun vaknaði stúlkan svo upp frá værum blundi, sátt við að hafa ekki ruglað meira þessa nótt og var litið á koddann sinn... hmmm hvar er eiginlega koddaverið??? Jú jú gott fólk vitið þið hvar hún fann það?? Reynið bara að giska!!! Það var innan undir bolnum hennar, hvar annars staðar!! Hellúúú hvað í helv. gengur eiginlega á???

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 15:01:21 / astarun

Með nögl í auga...

Jú jú þið lásuð rétt ég er með NÖGL í AUGANU!!! Er ekki allt í lagi hér á bæ, eða hvað??? Stelpukindin vara að klippa neglurnar á syninum þegar ein afklippan skaust upp í augað á henni og þar við situr... frekar óþægilegt, en þið gátuð eflaust sagt ykkur það sjálf!

Nú er unginn minn litli búinn að vera veikur í þrjá daga og þvílíkt sem mann langar út þegar maður getur það ekki!!! Ég bara þrái að komast út í göngutúr!! Ég legg lillann minn inn í rúm til að sofa á daginn og ætla mér bara að liggja rétt á meðan hann er að sofna en nei nei auðvitað steinrotast ég alltaf með honum þannig að þessa dagana sem ég eins og ungabarn... ekki alveg það hollasta. Hver annað hægt þegar snáðinn strýkur andlitið mitt meðan hann er að sofna, úff hver stenst það eiginlega að sofna ekki við svoleiðis strokur?


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 10:40:50 / astarun

Hvað er nýtt títt???

Ég er komin heim í heiðardalinn, ég er komin heim með fullt af SKÓM!!!

Já hjónakornin eru mætt á klakann eftir snilldarferð til snilldarborgarinnar Prague með fullar töskur af kristal, fötum og skóm! Mæli hiklaust með þessari borg, hún er sú fallegasta að ég held og í þvílíku uppáhaldi þessa dagana að mín er strax farin að huga að annarri ferð til lands Tékkanna.

Lánið lék við okkur frá upphafi, lentum á hóteli sem var við hliðina á Molli.. oh en leiðinlegt!!! Gula neðanjarðarlestarlínan var einnig við hlið oss og dreif hún okkur beinustu leið niður í bæ.. oh enn leiðinlegara!!!

Bjórinn kostaði sama og ekkert, maður bauð á línuna fyrir kannski einn skitinn þússara... 9 bjórar á bar = 900 ísl. krónur... Svaka auðlingur... hei ÉG BÝÐ!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 15:39:49 / astarun

Hvernig getur þetta átt sér stað???

Fór í búðina til að kaupa kökuform... þegar ég kom út í bíl og var að smella bílstólnum í leit ég á varninginn sem ég keypti, heimilisbrauð og kleinuhringir... hmm ekki alveg það sem ég ætlaði að kaupa og ekki einu sinni nálægt því. Ég tek strákinn úr bílnum og arka aftur inn í búðina til að kaupa kökuformin. Þá mæti ég konu, hún brosir og spyr hvort ég sé að leita að símanum mínum því hann sé á kassanum... uuuu jú jú (eða þannig) Ég kaupi kökuformin og tek símann minn og fer aftur út í bíl. Þegar ég er að festa strákinn er mér litið út og sé þá fljúgandi debetkort!!! Jú jú glöggir fatta strax að þarna var mitt kort á ferðinni, hafði ekki einu sinni grun um að ég héldi á því!!

Vá er þetta hin svokallaða meðgöngu-, fæðingar- og brjóstagjafaþoka?? Mikið ætla ég að skýla mér lengi á bak við hana!!!

En að allt öðru, þeir sem eru einhverra hluta vegna að snæða mat eða með krónískan flögurtleika ættu ekki að lesa lengra............. síðustu tvær nætur hefur mig dreymt eigin kúk!!! Er ekki allt í lagi eða??? Stundum er sagt að mann dreymi það sem er efst í huga manns en ég sver að kúkur er ekki það sem er efst núna!!! Mig minnti að kúkur í draumi þýddi gróði svo ég rauk út í búð og keypti tvær happaþrennur og einn Víking og ég vann!!!! Ekki nema 300 krónur og finnst mér þessi litli gróði ekki alveg vera virði tveggja nátta kúkadrauma!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Leitarbox